KIDDI KÓNGUR !
29.08.2006 21:58:04 / kiddi

Sumarfrí 2006

Já langt síðan að ég hef bloggað, af mér er helst að frétta að ég og Guðrún fórum í sumarfrí í Grímsnes í geggjaðan bústað sem Matvís á, fyrr í mánuðinum og það var geggjað nice, fengum góða gesti í heimsókn og sáum Gay-Pride gönguna og litum og Menningarnótt í Rvk. Er síðan að hætta á Bautanum 1. okt eftir að vera búinn að vinna þar frá sumarinu 2000, er að fara að vinna uppá Strikinu, það verður gaman að prufa eitthvað nýtt. En maður á eftir að sakna Bautans, aldrei að vita að maður eigi eftir að koma aftur þangað J   Kveðja Kiddi

Var að láta myndirnar inn úr sumarfríinu, þær eru undir  # Sumarfrí 2006 #

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 00:54:40 / kiddi

Búið að kveða upp dóm

Þrír ungir karlmenn voru í dag fundnir sekir um líkamsárás. Þeir ruddust í heimildarleysi inn í eldhús Bautans á Akureyri í ágúst í fyrra þar sem tveir þeirra börðu einn starfsmann veitingastaðarins og annar þeirra tók starfsmanninn hálstaki.

Refsiákvörðun var frestað í tvö ár að því tilskyldu að þeir haldi skilorð

Tekið af http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20060407/FRETTIR01/60407045/1091

Allur dómur Héraðsdóms Norðurlands á slóðinni http://www.visir.is/assets/doc/XZ2247.DOC (word skjal - 56 kb)


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 13:50:31 / kiddi

Food and Fun helgin

Það var stuð fyrir sunnan á Food and fun, tók flug á föstudag og var búin að fá bílinn hjá Valla P. Sótti hann og fór síðan að leita að íbúðinni sem Ómar var með á leigu, ætlaði að fá að gista þar, eftir umþaðbil klukkutíma leit í rvk í leit að Ásasel og búinn að hringja 118 og 1818 komst ég að því að sú gata er ekki til, var nú ekki sáttur við hann Ómar , náði svo loks sambandi við hann , hann var nefnilega í starfskynningu á Argentínu ásamt Ólöfu , þá hét gatan allt í einu Ásholt, Fann hana síðan og komst að því að íbúðin var hliðina þar sem bíllinn hann Valla var , Þvílíkt rug.

Um kvöldið fór ég og Jóna út að borða á La Primavera og var það mjög gaman og góður matur, fór ég Gunni sem var líka fyrir sunna í starfskynningu á Holtinu og Ómar í keilu og vann Kóngurinn þetta auðvitað. Á laugardag var farið á Food and fun keppnina og séð marga góða kokka og var Jóna að aðstoða Floru frá Frakklandi í keppninni. Hafði Gunni unnið í gegnum Morgunblaðið sæti fyrir 2 á keppnini sem var boðið í mat og fengum við að smakka á mörgum góðum réttum og auðvitað vín með.

Síðan þegar Ómar og Ólöf voru búin að vinna var þeim boðið út að borða á Argentínu þar sem þau voru að vinna og fékk ég að koma með og borða með þeim frítt 5 rétti og vín með öllum réttum, Fórum við á Food and Fun ballið á Nordica og hittum Evert snilling og náðum síðustu lögunum með Eyfa og Bo sem var snild, enduðum í bænum á Hressó og síðan í egg, beikon og Spaghetti hjá Jónu og Hrafnhildi.  Spaghettið kom sterkt inn

Búinn að setja inn myndir fá þessari ferð undir tenglinum Food and Fun 2006

Kveð að sinni Kóngurinn

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 21:23:07 / kiddi

Allt að gerast

Ég er nú ekki búin að standa mig í blogginu undanfarið, af mér og Guðrúnu er bara gott að frétta, Guðrún mín varð 23 ára 4. febrúar síðastliðinn og vona að allir hafi munað eftir þeim degi, gaf henni puma skó og gjafabréf uppá rómantískan kvöldverð með tilheyrandi fyrir hana og mig :)

Er svo að setja upp bautablogg síðu þar sem gamlir og nýjir bautastarfsmenn getað bloggað saman, til að fá aðgang talið við mig

Síðan er á slóðinni http://www.blog.central.is/bautastaff/  endilega skrifið á síðunna :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 19:26:34 / kiddi

Chill á kantinum

Af mér er eitthvað minna að frétta, er bara í afslöppun heima núna. Maður var að vinna alla helgina og svo var farið í brjálað kúreka afmæli hjá Gumma á Bautanum, og var að setja inn myndir frá því, Guðrún mín var duglega að taka myndir fyrir mig en ég kom bara eftir vinnu og færðum Gumma Gasgrill frá starfsmannafélaginu Svelgir og Belgir og var hann ánægður með það, Löggan kom á svæðið og ætlaði að rukka Helgu um skemmtannaleyfi en hún hélt samt ekki, fengum við lögguna til að renna okkur heim í Melasíðuna. Síðan er stefnt á það að fara í leikhús á laugardaginn á miðnætursýningu með Bautastaffinu, er ekki stemmari fyrir því eða ?? comentið á það og Segið mér hvað ykkur fynnst um myndirnar úr afmælinu hjá Gumma sem þið fynnið í myndatengiliðinum. Later K.K.

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.10.2005 11:56:09 / kiddi

Árshátíð Bautans 2005

Nú er Árshátíð búin og tókst bara vel. Var að setja inn myndir af Árshátíðinni og finnið þær hér til hliðar, einnig bautapistillinn og myndir úr honum, nenni ekki að þreyta mig og skrifa meira. Later Kóngurinn

Árshátíð Bautans 2005

Myndir úr pistli 2005

Bautapistill 2005


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.09.2005 00:13:26 / kiddi

Tippsdjamm 2005

Var að láta inn geggjaðar myndir af tippsdjamminu sem við fórum 3.sept staffið á Bautanum og Belunni sem var algjör snild, byrjað var á pallinum hjá Lindu og svo var borðað á Rósagarðinum og maturinn var geggjað góður , var komið heim til okkar Guðrúnar og haldið fyrsta partyið í nýju íbúðinni okkar sem var alveg snildar party, Lang best er að skoða myndirnar úr þessu Tippsdjammi

Finnið þær til hliðar og stendur Tippsdamm 2005


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.08.2005 14:22:32 / kiddi

Nýjar myndir loksins

Er búinn að láta helling inn af nýjum myndum sem ég hef verið að taka í sumar. Endilega skoðið þær hér til hliðarog segið mér hvað ykkur finnst um þær, tenglarnir eru :

Grill og Singstarparty Bráðavaktarinnar

Sumarfrí 1. hluti, þar fór ég og Guðrún til Ólafsfjarðar, Hrísey og í Ásbyrgi

Sumarfrí 2. hluti, þar fórum við til Seyðó, Egilsstaða, Atlavíkur og Kárhnjúka þar sem maður lenti í góðu brasa með bílinn

Vaglaskógur með ER, Góð fjölskylduútilega Bráðavaktarinnar

Hríseyjarhátíðin 2005, þar fórum við nokkur af Bautanum og skelltum okkur á Stuðmenn og Hildi Völu


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2005 12:11:04 / kiddi

Myndir Myndir

Er búin að láta inn fullt af nýjum myndum, fyrst og fremst frá útskriftinni minni sem var fyrir sunnan og svo fórum ég og Guðrún út að borða með mömmu og pabba á Argentínu í tilefni dagsins, svo er myndir frá Vorfagnaði Bautans sem fór fram á Ytri-Vík þar var farið að skoða ísjakann og veiddum við nokkra þorska og veiddi ég fyrsta fiskinn og fékk verðlaun fyrir það. Síðan er ég búin að láta myndir af Útskriftarveislunni minni sem ég hélt 11. júni hjá systu, Endilega skoðið þessar myndir hér til hliðar, og segið mér hvað ykkur finnst, tenglarnir eru

Útskriftin

Vorfagnaður Bautans

Útskriftarveisla

Kallinn Kveður :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.05.2005 10:32:33 / kiddi

Kiddi Kokkur :)

Já það er langt síðan að maður hefur bloggað síðast, það er nú góð ástæða fyrir því, er búin að vera í prófum og kallinn náði þessu öllu og er orðinn kokkur. Síðan er bara útskriftin á morgunn og ætla síðan út að borða annaðkvöld með Guðrúnu og gamla settinu sem er að koma hingað til rvk á útskriftina. Svo er ég og Guðrún búin að vera á fullu að pakka saman og ganga frá íbúðinni, af því að við erum að fara að flytja norður á sunnuaginn í íbúðina hans Ingós í Tjarnarlundi og þar verðum við í sumar, Síðan er maður að spá að halda eitthvað útskriftarparty þegar maður er búin að koma sér fyrir. En þangað til Næst , Kveður kokkurinn að sinni :)

Myndir frá afmæliskvöldverðinum sem Guðrún bauð mér í Perluna og
Myndir frá sveinsprófinu í köldum mat hér til hliðar


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.05.2005 22:58:28 / kiddi

Kóngurinn á lífi

Já það er allt að gerast hérna hjá mér, ég er hér með að skrifa á blogginu. Maður er ekki búinn að standa sig vel í því undanfarna daga. Það helsta sem er búið að vera að gerast hjá mér að ég og Guðrún erum búin að fara 2 ferðir norður síðan um páskana aðra var farið í fermingu hjá frænkum Guðrúnar og tekin létt æfing fyrir sveinspróf, í seinni ferðinni var aðalega unnið á Bautanum og reynt að næla sér í einhverja peninga, því að það eru litlar tekjur á að vera í skóla og hefur maður verið að lifa á betri helmingnum henni Guðrúnu :) Síðan er skólinn að klárasta og við því tekur próf of sveinspróf og maður þarf að fara að læra eitthvað undir þau. Föstudagurinn var frekar góður og langur dimmeteringardagur, þá var mætt upp í skóla og útskriftarnemendum boðið í morgunmat og við kvöddum kennarana okkar með snildar lagi um þá, síðan var farið niðrí miðbæ í íbúð beint fyir ofan Austurvöll og þaðan var sungið fyrir allt liðið sem var þar, meira að segja kom mynd af okkur í fréttablaðinu í dag á bls 31 síðan var farið niður á Austurvöll og sprellað meira, Svo fórum við í bekknum á Tapas barinn og enduð góðan dag á skemmtistöðum Reykjavíkur.
Síðan minna fólk að kallinn á afmæli á fimmtudaginn 5. mai og tek ég við hamingjuóskum í síma 8670979 og hérna á síðunni 8)
Hér til hliðar getið þið smellt á Tengill sem stendur dimmetering og skoðað myndir frá þeim góða deigi :)

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.03.2005 16:13:21 / kiddi

Páskarnir

Já þá er maður kominn aftur til rvk eftir gott páskafrí á Akureyri. Á miðvikudaginn var Bautaparty hjá Auði og mætti góður slatti þangað og fínn stemmari svo var sjálfsögðu leiðinni haldið í Sjallann á Sálina, og var geggjað stuð þar. Kallinn tók slatta af myndum þar og getið þið skoðað þær hérna til hliðar, stendur Bautaparty+sálin :) Síðan á skírdag var ég með matarveislu fyrir pabba sem var að halda upp á 60 ára afmælið sitt og getið þið skoðað myndirnar hérna til hliðar. Svo á föstudag og sunnudag var spilað Fimbulfamb sem er algjört snildar spil í góðra vina hóp og ef einhver á þetta spil og er til í að selja mér það má hann endilega hafa samband :) Svo var bara rent suður í dag í blíðunni. Endilega segjið mér hvaða mynd er sú besta úr sjallanum, Það eru nefnilega margar góðar þar :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.03.2005 11:23:44 / kiddi

Er að koma heim í Heiðadalinn

Já var lagið ekki þannig eða:)? JÁ maður er á leiðinni heim til Akureyrar á föstudaginn, það varður nóg að gera hjá manni um páskana, þarf að klára matseðlaverkefnið mitt sem er það stærsta verkefnið í 3ja bekk, svo eru það sveinsprófsæfingar og er síðan með matarveislu fyrir Pabba sem varð 60 ára í gær. Til hamingju með það Gamli.

Á föstudagskvöldið síðasta var haldið létt Idolparty og héldu allir sem voru hérna með henni Hildi, sem tók þetta kvöld með stæl, þótt að Heiða hafi staðið sig mjög vel. :lol:

Ligg núna upp í sófa var í frönskuprófi í morgunn og brillaði þar, er síðan að fara í vínkynningu í skólaunm, snild sko :lol: . Ég er búinn að skreyta aðeins hérna á síðunni með gulum lit að tilefni páskana, er síðan með nýjan hlut hér til vinstri síðunni þá geturu leitað að vissu nafni eða einhverju sem ég hef skrifað í dagbókina, endilega prófaðu það. En er fólk ekki að detta í páskagírinn og hvað á svo að gera um páskana? Endilega segið mér frá því ? :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.03.2005 14:19:59 / kiddi

Næsta Helgi

Hvað er svo málið um næstu helgi, ég og Guðrún vorum að spá að halda létt Idolparty á föstudaginn, og bjóða nokkrum vinum og kunningjum. Það var meiningin að halda svipað Idolparty sem ég og Matti héldum í fyrra, sem er auðvitað ekki hægt að toppa, en þið sem skoðið síðuna, hvað ætlið að gera næstu helgi? Og Hver vinnur Idolið,? Fór á Idolið á föstudaginn og það var geggjuð stemmning, Endilega segið ykkar skoðun á málinu :o  Kóngurinn Kveður ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.03.2005 21:04:54 / kiddi

2 miðar á Úrslitakvöldið

Ég á eftir 2 miða á úrslitakvöldið á Idolinu, áhugasamir skrifa sig niður hérna á síðuna og verð sem þeir bjóða í miðana. Takk Fyrir

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Marmaris
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1735 dögum
Marmaris
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1735 dögum